4.4.2006 | 21:40
Næsta innlegg...
... ég er í ferlegum vandræðum með að skíra innleggin - finnst allt eitthvað svo asnalegt
Nú er prófpressan alveg að ná mér - kláraði lokaverkefnið í einu faginu í dag og gekk bara mjög vel - eins og ég var farin að stressa mig (svaf ekki einu sinni vel í nótt) að þá gekk þetta bara fínt.
Til að taka pressuna aðeins af mér þá fékk ég staðfestingu á því að ég er komin með vinnu þegar skólinn klárast og ég er mjög ánægð með hana - hlakka mikið til að byrja
Ég ætla nú að fara að sofa og helst sofa þangað til á hádegi á morgun (wishful thinking)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2006 | 21:28
Einhvers staðar byrjar þetta
Ég hef oft spáð í að byrja að blogga en eitthvað fundist það svo asnalegt þar sem ég hef svo mikið spáð í hverjir lesa, en svo held ég að svo margir séu að blogga hvort eð er að það skiptir ekki lengur máli hver les hvað....
allavega - bloggið byrjað:
ég fór í skírn í dag og litli kútur var skírður Sölvi Freyr, ferlega flott nafn og fer honum svakalega vel. Hann sver sig alveg í fjölskylduna, fékk nafn sem byrjaði á S og svaf eins og steinn alla veisluna, voðalega easy going og afslappaður - bara alveg eins og hin þrjú (fjölskyldumeðlimir, ekki systkyni).
Annars held ég að ég hafi étið á mig risa stórt gat, er ekki viss um að ég muni borða nokkurn tímann aftur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Fallega fólkið
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar